Skip to main content
VMF

Smitandi ósvífni gagnvart launafólki

By júní 28, 2021júlí 12th, 2021No Comments

Pistill forseta ASÍ
Gul stéttarfélög eru félög sem eru undir áhrifavaldi atvinnurekenda og eru stofnuð til að koma í veg fyrir að starfsfólkið sé félagar í óháðum og raunverulegum stéttarfélögum. ÍFF, sem flugfélagið Play hefur samið við, ber öll merki þess að vera gult stéttarfélag enda er það nú orðið ljóst að svokallaðir kjarasamningar fyrir flugfreyjur og -þjóna voru ekki gerðir af þeim sem áttu að vinna samkvæmt kjarasamningunum. Nokkrir flugmenn sömdu fyrir flugfreyjur og -þjóna. Fólkið sem á að vinna samkvæmt þessum samningi var víðs fjarri. Flugfélagið Play hefur svo neitað að hitta eina raunverulega stéttarfélag flugfreyja og -þjóna, félag sem hefur sannanlega staðið með sínum félögum, hefur stuðning frá öðrum stéttarfélögum innan Alþýðusambandsins og sótt styrk í heildarsamtökin. Þetta vita fyrrum flugfreyjur og -þjónar hjá WOW air mæta vel. Þau muna vel þegar Flugfreyjufélag Íslands, með stuðningi frá ASÍ, lánaði félögum sínum peninga þegar launagreiðslur brugðust eftir gjaldþrot WOW air, þangað til ábyrgðasjóður launa var búinn að greiða skaðann.

Hin ótrúlega ósvífni ÍFF og Play gagnvart launafólki á Íslandi mun smitast út um allan vinnumarkaðinn ef ekki er staðið hraustlega gegn tilraunum til að brjóta á bak aftur frjáls stéttarfélög sem vinna raunverulega að hag félagsmanna sinna. Baráttan mun halda áfram og standa þangað til Play gerir raunverulegan kjarasamning við raunverulegt stéttarfélag. Því lofa ég en verð jafnframt fyrsta manneskjan til að fagna samkeppni á flugmarkaði sem byggist á raunverulegri viðskiptalegri samkeppni en ekki samkeppni um hverjum takist að greiða lægstu launin.

Í nýrri vinnumarkaðsskýrslu ASÍ sem kom út í dag kemur fram að tekjufall þeirra sem misstu vinnuna í kófinu nemur um 37%. Það er því til mikils að vinna fyrir fólk að komast aftur inn á vinnumarkaðinn. Þegar fulltrúar atvinnurekenda tala um hversu erfitt er að ráða fólk má því velta því fyrir sér hvaða kaup og skilyrði verið er að bjóða því? Hvort öryggi fólks gagnvart smitum sé örugglega tryggt, hvað fólk þarf að greiða til að afla sér tekna með ferðakostnaði og hvort heilsufarslegt álag í vinnunni sé meira en launin réttlæta.

Endurreisn ferðaþjónustunnar má ekki byggja á lægri launum, verri samningum, sniðgöngu stéttarfélaga eða lakari aðbúnaði.

Góða helgi,
Drífa