Hvernig sæki ég um?

Sjúkradagpeningar
Ef þú þarft að sækja um sjúkradagpeninga þá er ferlið þannig að þú kemur á skrifstofuna og fyllir út umsókn í sjúkrasjóð VMF .  Á umsókninni kemur fram nafn, kennitala, vinnustaður, banka- og reikningsnúmer og fleira. Einnig má senda gögnin í tölvupósti á netfangið skrifstofa@stettarfelag.is

Með umsókninni þarf að fylgja:

  1. læknisvottorð
  2. síðustu 2-3 launaseðlar
  3. vottorð frá vinnuveitanda um nýttan veikindarétt
  4. Upplýsingar um nýtingu persónuafsláttar ef við á (komi þær ekki fram á vottorði vinnuveitanda) þar sem sjúkradagpeningar eru staðgreiðsluskyldir.

Sjúkradagpeningar eru greiddir út í lok mánaðar.

Umsóknir og gögn verða að berast fyrir 20. hvers mánaðar, annars verður umsóknin afgreidd mánuði síðar.

Ef sótt er um aðra styrki úr sjóðnum þarf að koma á skrifstofu og fylla út umsókn en henni þarf að fylgja greiðslukvittun fyrir því sem sótt er um. Einnig má senda gögnin í tölvupósti á netfangið skrifstofa@stettarfelag.is