Skip to main content
VMF

Lítil samkeppni milli raftækjarisa

By júní 6, 2024No Comments
FLAT SCREEN TVS
Lítillar samkeppni gætir milli Elko og Heimilistækja-samstæðunnar, sem innifelur Tölvulistann, Rafland og Byggt og búið, samkvæmt úttekt verðlagseftirlits ASÍ. Í samanburðinum voru 61% af verðum þau sömu, upp á krónu. Samanburðurinn var framkvæmdur þann 3. júní 2024. Bornar voru saman vörur sem eru merktar með sama strikamerki í vefverslun Elko annars vegar og vefverslun Heimilistækja, Tölvulistans, Raflands og Byggt og búið hins vegar. Verð samreknu verslananna þriggja voru í öllum tilfellum þau sömu og voru skoðuð sameiginlega. Verð oftar ódýrari hjá Heimilistækja samstæðunni 

Af 337 vörum sem bornar voru saman voru verð nákvæmlega þau sömu í 208 tilfellum. Þegar eftirstandandi verð voru borin saman var verðlag í Heimilistækja-samstæðunni lægra en í Elko. Í Elko var verð að meðaltali 2,7% hærra en lægsta verð. Verð í Heimilistækja-samstæðunni var að meðaltali 1,7% hærra en lægsta verð. Verðmunurinn var í einhverjum tilfellum verulegur, upp á tugi þúsunda króna, helst þegar um afslætti var að ræða. 

Þegar munurinn er stærri 

Til dæmis var LG 55 tommu sjónvarp á 15.000 krónu afslætti í Heimilistækjum og Rafland og á 22.000 krónu afslætti í Elko. Án afsláttar var verðmunurinn ein króna, eða 0,001%. 

SanDisk Cruzer Blade 64GB minnislykill var á 40% afslætti í Elko, og því 1.201 krónu ódýrari en í Rafland og Tölvulistanum. Án afsláttar var verðmunurinn ein króna. 

LG 86 tommu UR78 sjónvarp var á 19% afslætti í Elko og því 60.001 krónu ódýrari en í Heimilistækjum. Án afsláttar var verðmunurinn ein króna, eða 0,0003%. 

Dæmi voru um vörur sem ekki voru á afslætti en sem þó var mikill verðmunur á. Til dæmis voru tólf sortir af Canon prentbleki 4-35% dýrari í Elko. Fjórar sortir voru jafndýrar og í Heimilistækja-samstæðunni. 

Lítill verðmunur milli fyrirtækjanna 

Frá 15. maí hefur hlutfall þess verðs sem er eins í Elko og Heimilistækja-samstæðunni verið tiltölulega stöðugt, eða á bilinu 60-64%. Meðalverðmunurinn hefur verið um 1.270 krónur á þessum tíma, en um 3.400 krónur ef aðeins er horft til vara sem ekki eru á sama verði í báðum búðunum. 

Hafa ber í huga að hér er aðeins um lítinn hlut vöruúrvals verslananna að ræða, þ.e. þær vörur sem eru samanburðarhæfar milli verslana. Vöruúrval hverrar verslunar er í þúsundatali, en samanburðargögnin ná til nokkur hundruð vara.

 

Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.