Verslunarmannafélag Skagafjarðar hefur ákveðið að bjóða félagsfólki sínu á leiksýningu Leikfélags Sauðárkróks sem sýnir farsann Flæktur í netinu í Sæluvikunni.
Þeir sem ætla að nýta sér boðsmiðann þurfa að kaupa miða inni á tix.is en þegar þeir mæta á sýninguna þurfa þeir að tilkynna sig í miðasölunni og láta haka við nafn sitt.
Stjórn Verslunarmannafélagsins verður svo í sambandi við þá aðila sem nýttu sér miðann til að endurgreiða miðakaupin.
Leiksýningar verða sem hér segir.
27. apríl (sunnudagur) kl. 20:00 – Frumsýning
29. apríl (þriðjudagur) kl. 20:00 – 2. sýning
30. apríl (miðvikudagur) kl. 20:00 – 3. sýning
2. maí (föstudagur) kl. 20:00 – 4. sýning
3. maí (laugadagur) kl. 15:00 – 5. sýning
4. maí (sunnudagur) kl. 20:00 – 6. sýning
6. maí (þriðjudagur) kl. 20:00 – 7. sýning
7. maí (miðvikudagur) kl. 20:00 – 8. sýning
Góða skemmtun.