Orlofsuppbót skv. kjarasamningum félagsins er kr. 53.000 árið 2022 (fyrir árið 2021 m.v. fullt starf.) Orlofsuppbót skal greiða eigi síðar en 1. júní 2022.
Orlofsuppbót er föst tala og tekur ekki launabreytingum skv. öðrum ákvæðum kjarasamnings. Skattar og skyldur, félagsgjöld og lífeyrissjóður greiðast af orlofsuppbót. Orlof greiðist ekki ofan á orlofsuppbótina.
Á heimasíðu VR getur þú reiknað út orlofsuppbót þína, en VR á sama kjarasamning og Verslunarmannafélag Skagafjarðar.