Skip to main content

Við minnum félagsmenn á opinn kynningarfund sem haldinn verður kl. 18 í dag á Mælifelli en þar verður innihald nýgerðs kjarasamnings kynnt.

Gylfi Arnbjörnsson mun kynna innihald nýgerðs kjarasamnings á sameiginlegum fundi Verslunarmannafélags Skagafjarðar, Öldunnar stéttarfélags og Iðnsveinafélags Skagafjarðar.

Fundurinn verður haldinn kl. 18:00 á Mælifelli
miðvikudaginn 15. janúar.

Fundurinn er opinn öllum félagsmönnum þessara félaga og eru þeir eindregið hvattir til að mæta og fá kynningu á efni samningsins.