Skip to main content

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,8% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 6,1%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs lækkað um 0,6% sem jafngildir 2,3% verðhjöðnun á ári (3,8% verðhjöðnun fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í júlí lækkaði um 0,66% frá fyrra mánuði. Þetta er mesta lækkun vísitölunnar milli mánaða síðan í mars 1986.

Sumarútsölur eru í fullum gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 10,3% (vísitöluáhrif -0,68%).