Skip to main content
VMF

Halldór Benjamín fer með rangt mál

By október 24, 2022No Comments

Í aðdraganda kjarasamninga er því iðulega haldið fram að lítið sem ekkert svigrúm sé til launahækkana. Slíkar fullyrðingar hafa verið settar fram frá fjármálahruni óháð stöðu efnahagslífs, bæði í uppsveiflu og niðursveiflu.Halldór Benjamín, framkvæmdastjóri Samtaka Atvinnulífsins, sagði þetta ekki vera rétt í pallborðsumræðum eftir kynningu á hagspá Landsbankans. Verkalýðsforystan þekkir hins vegar mætavel að atvinnurekendur töldu lítið eða ekkert svigrúm til staðar árið 2012[1], 2013[2], 2015[3] og 2018[4]. Samtök Atvinnulífsins nota gjarnan þá þumalputtareglu að svigrúm til launahækkana sé 4%, það er 2,5% verðbólgumarkmið að viðbættri forsendu um 1,5% framleiðnivöxt.  En hvers vegna hefur þá kaupmáttur vaxið síðasta áratug og verðbólga verið lág? Fyrir þessu eru tvær ástæður.

Raunlaun lækkuðu verulega í hruninu

Launahlutfall lýsir þeim hluta verðmætasköpunar sem rennur til launafólks í formi launa og tengdra gjalda. Á árunum 2007-2009 varð óðaverðbólga og efnahagshrun til þess að lækka raunlaun, þ.e. kaupmátt launa. Þessu kjósa atvinnurekendur að horfa framhjá. Launahlutfallið féll um 18 prósentustig, m.ö.o. sá hlutur sem fyrirtæki greiddu í laun og tengd gjöld lækkaði og sá hlutur sem rann til eigenda jókst. Síðastliðinn áratug hefur verkalýðshreyfingin verið að vinna upp tapaðan kaupmátt. Með öðrum orðum, þá var svigrúm til launahækkana. Launahlutfall er í dag í takt við langtímameðaltal. Hafa ber þó í huga að hluti af hækkuninni skýrist af auknu umfangi ferðaþjónustunnar í verðmætasköpun, þ.e. mannaflafrekri grein með hátt launahlutfall.

Framleiðnivöxtur er vanmetinn

Framkvæmdastjóri Samtaka Atvinnulífsins vísar einnig til þess að laun geti að jafnaði einungis hækkað um 4%, þ.e. verðbólgumarkmið að viðbættri forsendu um 1,5% framleiðnivöxt. Hefði verkalýðshreyfingin fylgt einfaldri þumalputtareglu um 2,5% + framleiðni frá efnahagshruni hefðu laun á Íslandi verið 297 milljörðum lægri á árinu 2021 en raunin varð.

Líkt og ASÍ hefur bent á eru útreikningar á framleiðni verulega háðir forsendum, aðferðum, viðmiðunartímabilum og gögnum.[5] Réttast er að horfa á framleiðnivöxt í einkageira og undanskilja áhrif hins opinbera.[6] Sé miðað við einkageirann var framleiðnivöxtur meiri en 1,5% 16 af 24 síðustu árum og að meðaltali 3,3% á ári. Á síðasta ári jókst framleiðni um 4,1%.[7] Einföld þumalputtaregla um 1,5% framleiðnivöxt felur að líkindum í sér vanmat á framleiðnivexti og þar af leiðandi svigrúmi til launahækkana. Í þriðja lagi felur slík einföldun í sér að ekki er horft til áhrifa viðskiptakjara en þróun viðskiptakjara er hluti af svigrúmi til launahækkana. Viðskiptakjör hafa áhrif á getu útflutningsgreina til að standa undir launahækkunum, bæði jákvæð og neikvæð.[8]

Verkefnið framundan

Með því að hrópa úlfur úlfur og lýsa því alltaf yfir að ekkert svigrúm sé til staðar, þó afkoma fyrirtækja fari vaxandi, þó viðskiptakjör fari batnandi og launahlutfall sé stöðugt tala atvinnurekendur upp verðbólgu og verðbólguvæntingar. Það er ábyrgðarhluti að segja rétt frá. Því ber þó að fagna að nýr tónn heyrðist Halldóri í pallborðinu þar sem hann tók undir með verkalýðshreyfingunni og sagði að svigrúm væri til staðar en því þyrfti að ráðstafa rétt. Það er verkefni komandi kjaraviðræðna.

Kristján Þórður Snæbjarnarson, forseti ASÍ

Róbert Farestveit, hagfræðingur ASÍ

 

[1] https://www.visir.is/g/20121423392d

[2] https://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/09/25/svigrum_til_launahaekkana_0_5_2_prosent/

[3] https://www.visir.is/g/2015150109474/svigrum-til-launahaekkana-3-til-4-prosent

[4] https://www.sa.is/frettatengt/frettir/svigrum-til-launahaekkana-litid

[5] Sjá https://www.asi.is/media/317640/greinargerd-thjodhagsrad-laun-og-framleidni-1.pdf

[6] Verg landsframleiðsla mælir verðmæti vara og þjónustu sem framleidd er í landinu. Fyrir vörur og þjónustu sem seld er á markaði er meginreglan sú að notast er við markaðsverð. Þegar verðmæti samneyslu er metin er ekki hægt að notast við markaðsverð. Megnið er þjónusta sem hið opinbera fjármagnar og markaðsverð ekki til fyrir samneyslu. Verðmæti samneyslu í þjóðhagsreikningum byggir á kostnaði. Þess vegna eru gögn um framleiðni og launahlutfall ekki jafn upplýsandi fyrir samneyslu og fyrir einkageirann.

[7] Sjá https://www.asi.is/frettir-og-utgafa/frettir/almennar-frettir/framleidni-haekkar-umfram-laun/

[8] Viðskiptakjarabati felst í því að verðlag á útflutningi hækkar í hlutfalli við verðlag á innflutningi.