Skip to main content

Kjarasamningarnir framundan verða helsta umfjöllunarefnið á formannafundi ASÍ sem fram fer á morgun. Auk þess sem staðan í væntanlegum kjaraviðræðum verður vegin og metin verður fjallað um velferðakerfið á vinnumarkaði sem ASÍ hefur alla tíð lagt mikla áherslu á.

Kjarasamningarnir framundan verða helsta umfjöllunarefnið á formannafundi ASÍ sem fram fer á morgun.
Auk þess sem staðan í væntanlegum kjaraviðræðum verður vegin og metin verður fjallað um velferðakerfið á vinnumarkaði sem ASÍ hefur alla tíð lagt mikla áherslu á.
Seturétt á fundinum hafa formenn allra aðildarfélaga ASÍ, formenn deilda innan aðildarfélaga og miðstjórnarmenn.

Dagskrá fundarins

09:30     Skráning og afhending fundargagna
10:00     Ávarp forseta ASÍ
               Kynning á hagspá hagdeildar ASÍ

10:45      Kjaramálin – staða og horfur

12:00      Hádegishlé

13:00      Velferðarkerfið á vinnumarkaði:
   Menntun – virkar vinnumarkaðsaðgerðir – starfsendurhæfing
                Framsögur/innlegg:

                Ingibjörg E. Guðmundsdóttir, 
                framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins

                Runólfur Ágústsson, verkefnisstjóri „Liðsstyrks“

                Vigdís Jónsdóttir,
                framkvæmdastjóri VIRK starfsendurhæfingarsjóðs

                Umræður

                Afgreiðsla ályktunar

15:30      Önnur mál
                Afgreiðsla ályktana

16:00      Áætluð fundarlok