Skip to main content

Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verðbreytingar á gjaldskrám sundstaða hjá 15 stærstu sveitarfélögum landsins frá 1. janúar 2013 til 1. janúar 2014. Sjö sveitarfélög af þeim fimmtán sem skoðuð voru hafa hækkað gjaldið á stökum miða í sund fyrir fullorðna.

Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verðbreytingar á gjaldskrám sundstaða hjá 15 stærstu sveitarfélögum landsins frá 1. janúar 2013 til 1. janúar 2014. Sjö sveitarfélög af þeim fimmtán sem skoðuð voru hafa hækkað gjaldið á stökum miða í sund fyrir fullorðna. Árskort fullorðinna hefur einnig hækkað í verði hjá 7 sveitarfélögum af 15.

Gjaldskrá fullorðinna
Stakt gjald í sund kostar nú 527 krónur þegar tekið er meðalverð 15 stærstu sveitarfélaganna. Sjö sveitarfélög hafa hækkað gjaldið á stakri sundferð milli ára. Mesta hækkunin er 20% hjá Fjarðabyggð eða úr 500 krónum í 600 krónur. Minnsta hækkunin er 4% hjá Ísafjarðarbæ eða úr 530 krónum í 550 krónur og um 4% hjá Mosfellsbæ úr 550 krónum í 570 krónur.

Eins og sést á töflunni á heimasíðu ASÍ er lægsta staka gjaldið 400 krónur hjá Reykjanesbæ og Akraneskaupstað en hæsta staka gjaldið 600 krónur hjá Reykjavíkurborg, Fjarðarbyggð og Sveitarfélaginu Árborg.

Fréttin öll.