Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) lýsir yfir fullum stuðningi við málflutning Eflingar – stéttarfélags um félagið „Virðingu” sem stofnað hefur verið sem stéttarfélag án þess að uppfylla grundvallarskilyrði sem um slík félög gilda. Miðstjórn tekur einnig undir varnaðarorð Eflingar til starfsfólks í veitingageiranum um að halda sig fjarri félaginu og taka ekki þátt í starfsemi sem miðar að því einu að skerða kjör og grafa undan réttindum sem áunnist hafa með áratuga baráttu.
„Virðing” fellur undir þá skilgreiningu sem notuð er um svonefnd „ gul stéttarfélög”. Þar er átt við félög sem atvinnurekendur eiga frumkvæða að því að stofna og stýra og gera þannig í reynd kjarasamninga við sjálfa sig. Yfir allan vafa er hafið að minnst tveir stjórnarmenn „Virðingar” koma beint að rekstri veitingastaða sem eigendur eða stjórnarmenn. Þeir veitingastaðir starfa innan SVEIT, samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði.
Félög af þessum toga eru ekki stéttarfélög í skilningi Stjórnarskrár Íslands, laga nr. 80/1938 eða í skilningi mannréttindasáttmála sem Ísland er aðili að. Nú þegar eru í gildi löglegir kjarasamningar fyrir yfirgnæfandi meirihluta þess launafólks sem í þessum geira vinnur um land allt, þ.m.t. fyrir yfirgnæfandi meirihluta þess launafólks sem vinnur hjá aðildarfyrirtækjum SVEITAR og sem eru félagsmenn í Eflingu og öðrum stéttarfélögum innan ASÍ.
Miðstjórn ASÍ beinir því til allra heiðvirðra atvinnurekenda að hafna afdráttarlaust markmiðum og aðferðarfræði veitingamanna á vettvangi SVEIT og „Virðingar” sem grafa undan réttindum launafólks til þess eins að skapa sjálfum sér betri samkeppnisaðstöðu gagnvart þeim sem löglega standa að rekstri fyrirtækja sinna.
Miðstjórn beinir því einnig til aðildarfélaga ASÍ að bregðast af fullri hörku við þessari aðför að kjörum og réttindum starfsfólks og grípa til þeirra aðgerða sem þörf verður á til þess að hrinda henni.
Miðstjórn vekur athygli á að kjarasamningur „Virðingar” við SVEIT felur í sér augljósan ásetning um að skerða kjör og réttindi starfsfólks í veitingageiranum. Það á við um lengingu dagvinnutíma, lækkun kvöldvaktaálags, beina lækkun launa í tilfelli starfsmanns á veitingahúsi með eins árs starfsreynslu, niðurfærslu orlofsréttinda, skertan veikindarétt og fleira. Að auki uppfyllir „Virðing” ekki ýmsar lögbundnar skyldur sínar gagnvart félagsmönnum m.a. er varðar rekstur sjúkrasjóðs og fræðslusjóðs.
Miðstjórn telur heiti þessa nýja „stéttarfélags” lýsa fádæma ósvífni og að meintur „kjarasamningur” þess við SVEIT feli í sér aðför og fullkomið virðingarleysi gagnvart vinnandi fólki í landinu og löglegum stofnunum á vinnumarkaði. Þeir atvinnurekendur sem þannig ganga fram eru engrar virðingar verðir.
Miðstjórn Alþýðusambandsins lýsir yfir óbilandi og skilyrðislausri samstöðu með launafólki í veitingageiranum. Miðstjórn lýsir yfir stuðningi við réttindabaráttu þess og við gerð raunverulegra kjarasamninga í stað skipulegrar viðleitni til að níðast á láglaunafólki, ekki síst innflytjendum og ungmennum. Árásum af þessum toga er heimilt að bregðast við með þeim vopnum sem verkalýðshreyfingin býr yfir.