Skip to main content

Nýverið hófst hvatningarátak stjórnvalda í samstarfi við Alþýðusamband Íslands og aðildarfélög, Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samtök verslunar og þjónustu og Nýsköpunarmiðstöð Íslands til að vekja athygli á endurgreiðslu virðisaukaskatts og skattfrádráttar vegna framkvæmda við íbúðarhúsnæði og frístundarhús þegar fagmenn vinna verkin.

Með átakinu verða landsmenn hvattir til að beina viðskiptum sínum að innlendri vöru og þjónustu, fjárfesta í viðhaldi húsa sinna og leggja þar með sitt af mörkum til sköpunar atvinnu á Íslandi. Átakið á að sýna fram á að það sé einmitt hagstætt að ráðast í framkvæmdir núna – ekki bíða með það heldur kýla strax á endurbætur ef þörf er á, sökum endurgreiðslunnar og skattafrádráttar. Sömuleiðis er markmiðið með átakinu að vekja athygli á þeirri jákvæðu keðjuverkun sem fer af stað í hagkerfinu þegar þjóðin tekur höndum saman og leggst í framkvæmdir af þessu tagi.

Sjá nánar á www.allirvinna.is og á vef ASÍ