Ályktun stjórnar LÍV vegna heilbrigðisþjónustu fyrir félagsfólk LÍV
Stjórn Landssambands íslenzkra verslunarmanna (LÍV) lýsir yfir þungum áhyggjum af heilbrigðisþjónustu fyrir félagsfólk LÍV sem býr utan höfuðborgarsvæðisins í kjölfar ákvörðunar um að loka annarri af tveimur flugbrautum á Reykjavíkurflugvelli. Það er óboðlegt að slík ákvörðun sé tekin án þess að öryggi sjúklinga sé tryggt og ljóst að hún mun í einhverjum tilfellum hafa alvarlegar afleiðingar fyrir sjúklinga sem þurfa flutning til Reykjavíkur með sjúkraflugi.
Það er krafa LÍV að þeir aðilar sem bera ábyrgð á þessari stöðu; Reykjavíkurborg, Isavia, Samgöngustofa og Innviða- og Heilbrigðisráðuneytið, bregðist tafarlaust við með því að opna flugbrautina á ný og eyða þar með óvissu um öryggi og velferð sjúklinga víðsvegar um landið þar til önnur lausn er komin í notkun og á meðan flugvöllurinn er í Vatnsmýri.