Skip to main content
Uncategorized @is

Áframhald sameiningaviðræðna samþykkt

Mikill meirihluti svarenda í könnun Öldunnar, Samstöðu og Verslunarmannafélags Skagafjarðar var hlynntur því að halda áfram samningarviðræðum félaganna. Svörin dreifðust með eftirfarandi hætti.

 

  Nei
Aldan 83,2% 16,8%
Samstaða 94,5% 5,5%
Verslunarmannafél.Skagafj. 83,9% 16,1%

 

Það er því ljóst, að formenn félaganna hafa afgerandi umboð félagsmanna til að halda áfram og ljúka þeirri vinnu sem sett var af stað fyrir nokkrum misserum. Telji stjórnir félaganna niðurstöðu þeirrar vinnu ásættanlega, verður hún lögð fyrir félagsmenn í allsherjaratkvæðagreiðslu í hverju félagi fyrir sig.