Verð á sykri, hveiti og nokkrum súkkulaðivörum hefur lækkað milli ára en egg og mjólkurvörur hafa hækkað frá nóvember 2024. Mikill verðmunur getur verið á milli verslana, eða 11–66% á algengum bakstursvörum sem Verðlagseftirlit ASÍ skoðaði. Verðmunur getur einnig verið mikill innan verslana, á bilinu 9–31% á sambærilegum vörum. Neytendur geta því sparað mikið með því að velja ódýrara vörumerki innan sömu verslunar.
Sykur lækkar í verði annað árið í röð
Verðþróun þurr- og bökunarvöru er misjöfn milli ára. Nokkrar vörur sem hækkuðu mikið frá nóvember 2024 til nóvember 2025 lækka nú í verði. Lækkunina má m.a. rekja til sterkara gengis krónunnar og lægra verðs á hrávörum á borð við sykur og kakó en heimsmarkaðsverð á kakói er um helmingi lægra en það var í lok árs 2024.
Verð á vörum frá Nóa Síríus hefur lækkað milli ára. Þannig hefur verð á Nóa súkkulaðiperlum, Konsum suðusúkkulaði og Nóa Síríus rjómasúkkulaðidropum lækkað um 11–13% milli ára. Verðið er þó enn um 9–21% hærra en í nóvember 2024. Lindu suðusúkkulaði hefur hækkað um 30% frá 2024 og Freyju suðusúkkulaðidropar hækkuðu um 17% frá 2024–2025 en verðið hefur staðið óbreytt sl. ár.
Meðalverð á hveiti hefur lítið breyst á tímabilinu en sykur lækkar annað árið í röð. DanSukker-sykur hefur lækkað um 25% á tveimur árum og Euroshopper-strásykur um 18%. Egg hafa aftur á móti hækkað um 12–14% frá nóvember 2024 og rjómi, smjör og mjólk um 10–23%.
Sjá nánar í frétt á heimasíðu ASÍ
Allt að 66% verðmunur milli verslana
Verðsamanburður milli verslana sýnir að verðmunur getur verið mikill á einstökum vörum. Neytendum er því bent á að bera saman verð áður en haldið er í innkaupaferð, t.d. á Verðlagseftirlit.is.
Nóa súkkulaðiperlur kosta 476 kr. í Fjarðarkaupum þar sem þær eru ódýrastar en 789 kr. í Krambúðinni. Munurinn er 313 kr., eða tæp 66%.
Þá er verð á Kötlu púðursykri tæplega 60% hærra í Krambúðinni en í Prís og verð á Nesbú hamingjueggjum um 42% hærra. Á Kornax hveiti er munurinn minni, eða um 11% milli lægsta og hæsta verðs.
Engin ein verslun er með lægsta verð á öllum vörunum í samanburðinum. Prís er þó oftast með lægsta verðið eða á níu af þeim sextán vörum sem verð fékkst á í fleiri en einni verslun. Bónus er með lægsta verð á fjórum þeirra, Krónan á tveimur og Fjarðarkaup á einni. Þótt vörur hafi lækkað í verði milli ára er verðmunur milli verslana enn töluverður og því getur borgað sig að bera saman verðin.
Val á vöru eftir vörumerkjum innan verslana getur breytt miklu
Sé neytandinn einungis að horfa til verðs er yfirleitt hægt að velja hagkvæmari kost með því að velja samanburðarvöru innan sömu verslunar. Sem dæmi má nefna að með því að velja hveitið í Bónus frá Euroshopper samanborið við Kornax er sparnaðurinn 26,4% eða um 96 kr. Sambærileg dæmi má finna t.d. í Krónunni en þar er sparnaðurinn 21,4% á því að velja hveiti frá First Price eða um 78 kr. Í Nettó má finna álíka dæmi þar sem Coop-hveiti er 87 kr. ódýrara eða um 23% ódýrara en Kornax í sömu verslun.
Sama á við um súkkulaði, þar sem töluverðu getur munað á kílóverði eftir vörumerkjum innan sömu verslunar. Í Krónunni kostar Cachet bökunarsúkkulaði 2.130 kr./kg en Freyju suðusúkkulaði 2.995 kr./kg. Með því að velja ódýrari kostinn er því sparnaður um 29% eða 865 kr./kg. Í Prís má einnig sjá töluverðan mun á kílóverði á súkkulaði en Coop bökunarsúkkulaði kostar 2.245 kr./kg en Nóa Konsum suðusúkkulaði kostar 2.740 kr./kg sem er um 18% sparnaður eða um 495 kr. Í Bónus er suðusúkkulaði undir eigin vörumerki um 11% ódýrara en Freyju suðusúkkulaði miðað við kílóverð.
Um könnunina
Verð voru sótt úr nýjustu verðtöku ASÍ fyrir nóvembermánuð sem framkvæmd var dagana 3.–8. nóvember. Bornar eru saman sömu vörur milli mánaða. Hér er því aðeins um beinan verðsamanburð að ræða en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila. Í verðsamanburði er miðað við hilluverð sem neytandi hefur upplýsingar um í versluninni. Þegar skýrt er gefið til kynna að veittur sé afsláttur/tilboðsverð af merktu verði við kassa var skráð afsláttarverð.
Öll verð ásamt nýjustu verðum geta neytendur nálgast í Nappinu eða á verdlagseftirlit.is.
