
Við viljum bendum félagsmönnum okkar á viðburð á vegum Farskólans næstkomandi sunnudag en í tilefni Sæluvikunnar í Skagafirði býður Farskólinn upp á spennandi bragðferðalag um heiminn.
Nemendur í íslensku hjá Farskólanum mun þar kynna landið sitt og bjóða upp á smakk úr eigin matarmenningu.
Það verða fulltrúar frá Litháen, Lettlandi, Póllandi, Spáni, Búlgaríu, Grikklandi og Þýskalandi. Farskólinn mun að sjálfsögðu taka þátt og bjóða upp á íslenskar pönnukökur.
Hvenær: Sunnudaginn 12. apríl kl. 14.00–17.00
Hvar: Húsnæði Farskólans, Faxatorgi (efri hæð)
Þetta er frábært tækifæri til að hitta nýja íbúa svæðisins, kynnast annarri menningu og kíkja í heimsókn í Farskólann.
