Skip to main content
VMF

Umgengni í íbúðum og orlofshúsi

By febrúar 4, 2026No Comments

Að gefnu tilefni viljum við minna félagsmenn okkar á nauðsyn þess að virða þær húsreglur sem gilda í orlofsbyggðum og fjölbýlishúsum en nokkuð hefur borið á því að kvartanir hafa borist vegna hávaða og partýhalds í íbúðum fjölbýlishússins í Sóltúni þar sem félagið á 2 íbúðir.

Við minnum á að brot á umgengnisreglum getur orðið til þess að félagsmaður lendir á svörtum lista og getur þá ekki leigt íbúð eða orlofshús, auk þess sem hann þarf að borga sekt.

 

Til áréttingar:

Eftir kl . 23:00 til kl. 07:00 má ekkert aðhafast er raskað getur svefnfriði annarra íbúa hússins.
Ef veislur standa lengur en til kl. 23:00 þá er mælt með að nágrannar séu látnir vita.