Stjórn Landssambands íslenzkra verzlunarmanna tekur undir áhyggjur aðila vinnumarkaðarins af frumvarpi til breytinga á lögum um almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga. Stjórnin telur blasa við að verði frumvarpið samþykkt í óbreyttri mynd muni það grafa undan samtryggingakerfi lífeyrissjóða og leiða til eignaupptöku frá ellilífeyrisþegum til örorkulífeyrisþega. Til lengri tíma litið hefur sú tilfærsla sem lögð er til í frumvarpinu neikvæð áhrif á lífskjör eftirlaunaþega, þar sem tekjur þeirra verði lægri en ella.
• Frumvarpið felur í sér að kostnaði vegna hærri örorkugreiðslna verður velt á launafólk og ellilífeyrisþega, þ.e. sjóðfélaga lífeyrissjóðanna.
• Frumvarpið mun auka á skekkju í örorkubyrði milli lífeyrissjóða sem kallar á mótaðgerðir við jöfnun örorkubyrðar en í fjármálaáætlun er gert ráð fyrir að jöfnun örorkubyrði verði einhliða felld niður, sem stjórn Landssambands íslenzkra verzlunarmanna mótmælir harðlega.
Stjórn Landssambands íslenzkra verzlunarmanna mótmælir harðlega að stjórnvöld skuli einhliða rjúfa það samkomulag sem gert var við aðila vinnumarkaðarins um jöfnun örorkubyrði lífeyrissjóða, án þess að forsendur hafi breyst eða samið hafi verið um annað fyrirkomulag sem tryggi jöfnun á örorkubyrði og raski ekki getu sjóðanna til að standa undir skuldbindingum sínum gagnvart sjóðsfélögum.
Fyrirkomulag örorkutrygginga hefur lengi verið umdeilt, bæði vegna víxlverkunar milli TR og lífeyrissjóða og ólíkrar örorkubyrði milli sjóða sem leiðrétt hefur verið með jöfnunarframlagi úr ríkissjóði. Eðlilegast væri að stjórnvöld tryggðu fyrst og fremst framfærslu örorkulífeyrisþega og tækju um hana pólitískar ákvarðanir hverju sinni án mikilla áhrifa á starfsemi lífeyrissjóða. Lífeyrissjóðir gætu þá áfram sinnt því hlutverki við örorkutryggingu sem þeim var upphaflega ætlað – að tryggja tapaðar tekjur, og greiddu einungis tekjutengdan örorkulífeyri umfram þá framfærslu sem stjórnvöld tryggja. Við slíkt fyrirkomulag fellur víxlverkun niður og þörf á jöfnun örorkubyrði milli sjóða ætti jafnframt að minnka umtalsvert.
Fyrirliggjandi frumvarp er alvarlegum annmörkum háð og þarfnast ítarlegs og vel ígrundaðs samráðs við lífeyrissjóði landsmanna og aðila vinnumarkaðarins.
Frekari upplýsingar: Eiður Stefánsson, formaður LÍV, eidur@fvsa.is, s: 661 1162