Orlofsuppbót skv. kjarasamningum er kr. 60.000 árið 2025 (fyrir 1. maí 2024 til 30. apríl 2025 m.v. fullt starf.)
Orlofsuppbót skal greiða eigi síðar en 1. júní 2025.
Orlofsuppbót er föst tala og tekur ekki launabreytingum skv. öðrum ákvæðum kjarasamnings. Skattar og skyldur, félagsgjöld og lífeyrissjóður greiðast af orlofsuppbót. Orlof greiðist ekki ofan á orlofsuppbótina. Á heimasíðu VR (sem á sama kjarasamning og Verslunarmannafélag Skagafjarðar) má finna reiknivél þar sem hægt er að reikna út orlofsuppbótina.