Skip to main content
VMF

Mundu eftir orlofsuppbótinni þinni

By maí 18, 2021júlí 12th, 2021No Comments

Orlofsuppbót félagsmanna er 52.000 kr. árið 2021, m.v. fullt starf, og á að greiða þann 1. júní. Fullt starf er 45 unnar vikur í 100% starfi fyrir utan orlof á orlofsárinu frá 1. maí 2020 til 30. apríl 2021.

Uppbótin greiðist, miðað við starfshlutfall og starfstíma, öllum starfsmönnum sem hafa verið samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum m.v. 30. apríl, eða eru í starfi fyrstu vikuna í maí.

Orlofsuppbót er föst tala og tekur ekki launabreytingum skv. öðrum ákvæðum kjarasamnings. Skattur, félagsgjald og lífeyrissjóðsiðgjald greiðist af orlofsuppbót. Orlof greiðist ekki ofan á orlofsuppbótina.

Smelltu hér til að reikna út orlofsuppbótina þína (reiknivél á vef VR sem á sama kjarasamning)