Sjúkradagpeningar
Ef þú þarft að sækja um sjúkradagpeninga þá er ferlið þannig að þú kemur á skrifstofuna og fyllir út umsókn í sjúkrasjóð VMF . Á umsókninni kemur fram nafn, kennitala, vinnustaður, banka- og reikningsnúmer og fleira. Einnig má senda gögnin í tölvupósti á netfangið skrifstofa@stettarfelag.is
Með umsókninni þarf að fylgja:
- læknisvottorð
- síðustu 2-3 launaseðlar
- vottorð frá vinnuveitanda um nýttan veikindarétt
- Upplýsingar um nýtingu persónuafsláttar ef við á (komi þær ekki fram á vottorði vinnuveitanda) þar sem sjúkradagpeningar eru staðgreiðsluskyldir.
Sjúkradagpeningar eru greiddir út í lok mánaðar.
Umsóknir og gögn verða að berast fyrir 20. hvers mánaðar, annars verður umsóknin afgreidd mánuði síðar.
Ef sótt er um aðra styrki úr sjóðnum þarf að koma á skrifstofu og fylla út umsókn en henni þarf að fylgja greiðslukvittun fyrir því sem sótt er um. Einnig má senda gögnin í tölvupósti á netfangið skrifstofa@stettarfelag.is