Skip to main content

Stjórn LÍV lýsir sárum vonbrigðum með að ýmis fyrirheit sem ríkisstjórnin gaf í tengslum við undirritun kjarasamninga í vor, hafi ekki gengið eftir. Þrátt fyrir það, telur stjórn LÍV ekki tímabært að segja upp núgildandi kjarasamningi, m.a. vegna þess að í honum eru ýmis verðmæti fyrir verslunar- og skrifstofufólk, sem koma munu til framkvæmda að hluta þ. 1. febrúar n.k.
Yfirlýsing stjórnarinnar fer hér á eftir.

Stjórn Landssamband íslenzkra verzlunarmanna lýsir sárum vonbrigðum með að ríkisstjórn Íslands hafi ekki staðið við þau fyrirheit, sem gefin voru með yfirlýsingu hennar við gerð kjarasamninga hinn 5. maí 2011. Vill stjórnin benda sérstaklega á að sú aðför sem gerð er að almennu lífeyrissjóðunum gengur þvert á gefin fyrirheit um jöfnun lífeyrisréttinda á íslenskum vinnumarkaði, sem ríkisstjórnin lofaði að hafist yrði handa um. Þá mun það lengi í minnum haft að ríkisstjórn, sem kennir sig við norræna velferð, skuli svíkja gefin loforð um þá hækkun atvinnuleysisbóta og aðrar hækkanir almannatrygginga, sem um var samið.

Þrátt fyrir svikin loforð ríkisstjórnarinnar telur stjórn Landssambands íslenzkra verzlunarmanna ekki tímabært að segja upp núgildandi kjarasamningi. Byggir sú afstaða stjórnarinnar á því að í honum felast verðmæti fyrir verslunar- og skrifstofufólk sem m.a. munu koma til framkvæmda 1. febrúar næstkomandi.

Stjórn LÍV krefst þess af stjórnvöldum og atvinnurekendum að ráðist verði í fjárfestingar sem skili fólkinu í landinu fleiri störfum til framtíðar. Að nýta ekki þau tækifæri sem nú þegar eru til staðar til atvinnuuppbyggingar gerir ekkert annað en að viðhalda þeirri óvissu sem nú ríkir. Fólkið í landinu mun ekki láta sitt eftir liggja, standi ríkisvaldið og atvinnurekendur við sitt!