Skip to main content

Verslunarmannafélagið og Aldan efna til sameiginlegs fundar um nýgerða kjarasamninga nk. miðvikudag. Á fundinum fjallar Ólafur Darri Andrason um samninginn og svarar spurningum félagsmanna.

Nýr kjarasamningur !

Hvert er innihaldið ?

Um hvað var samið ?

 

Þessum spurningum mun Ólafur Darri Andrason hagfræðingur ASÍ svara á sameiginlegum fundi Öldunnar stéttarfélags og Verslunarmannafélags Skagafjarðar.

Fundurinn verður haldinn kl. 18:00 á Mælifelli, miðvikudaginn 11. maí.

Fundurinn verður opinn öllum félagsmönnum þessara félaga og eru þeir eindregið hvattir til að mæta á fundinn og fá kynningu á efni nýgerðs kjarasamnings sem fer í  atkvæðagreiðslu á næstu dögum.