Skip to main content

Alþýðusambandið og Samtök atvinnulífsins undirrituðu í dag, 15. júní, samkomulag um vinnustaðaskírteini og framkvæmd eftirlits á vinnustöðum. Samkomulagið er mikilvægur áfangi í baráttunni fyrir því að tryggja að atvinnurekendur og starfsmenn þeirra fari að gildandi lögum, reglugerðum og kjarasamningum. Þannig er því m.a. ætlað að hindra félagsleg undirboð á íslenskum vinnumarkaði.

Fulltrúar Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og aðildarsamtaka þess og Samtaka atvinnulífsins (SA) undirrituðu í dag, 15. júní, samkomulag um vinnustaðaskírteini og framkvæmd eftirlits á vinnustöðum. Samkomulagið er mikilvægur áfangi í baráttunni fyrir því að tryggja að atvinnurekendur og starfsmenn þeirra fari að gildandi lögum, reglugerðum og kjarasamningum. Þannig er því m.a. ætlað að hindra félagsleg undirboð á íslenskum vinnumarkaði.

Samkomulagið byggir á lögum nr. 42/2010 sem samþykkt voru á Alþingi 11. maí sl. um sama efni sem veita heildarsamtökum vinnumarkaðarins heimild til að semja um hvaða starfsgreinar falli undir gildissvið laganna hverju sinni.

Samkomulag ASÍ og SA tekur gildi 15. ágúst nk. Byggingastarfsemi, mannvirkjagerð, rekstur gististaða og veitingareksturfellur undir gildissvið samkomulagsins. Síðan er reiknað með að aðrar atvinnugreina fylgi í kjölfarið.

Vinnustaðaskírteinunum er sérstaklega ætlað að auðvelda eftirlit með því að starfsmenn njóti þeirra kjara og réttinda sem þeim ber og koma í veg fyrir ólöglega háttsemi á íslenskum vinnumarkaði.

Atvinnurekandi skal sjá til þess að starfsmenn fái vinnustaðaskírteini þegar þeir hefja störf.

Atvinnurekandi er ábyrgur fyrir gerð vinnustaðaskírteinisins og þeim upplýsingum sem þar koma fram. Á vinnustaðaskírteini skulu eftirfarandi upplýsingar koma fram:

Nafn og kennitala viðkomandi starfsmanns ásamt mynd. Starfsheiti er valkvætt. Ef starfsmaður erlends þjónustufyrirtækis er ekki með íslenska kennitölu skal skrá fæðingardag og ár.

Nafn/heiti atvinnurekanda eins og það er skráð í fyrirtækjaskrá (eða heiti starfsmannaleigu eins og það er skráð hjá Vinnumálastofnun).

Í samkomulaginu kemur einnig fram að samningsaðilar hafa ákveðið að vinna áfram að sérstökum staðli um vinnustaðaskírteini.

Samkvæmt lögunum er eftirlitsfulltrúum samtaka aðila vinnumarkaðarins heimilt að fara í eftirlitsheimsóknir á vinnustaði atvinnurekanda til að ganga úr skugga um að atvinnurekandi og starfsmenn hans starfi í samræmi við gildandi reglur. Skal eftirlitsfulltrúunum veittur aðgangur að vinnustöðum í þeim tilgangi. Atvinnurekandi og starfsmenn hans skulu bera skírteini á sér og vera reiðubúnir að framvísa því, sé þess óskað af eftirlitsfulltrúa. Með atvinnurekanda er einnig átt við sjálfstætt starfandi einstaklinga.

Í lögunum er kveðið á um að eftirlitsfulltrúarnir skuli senda upplýsingar þær sem fram koma á vinnustaðaskírteini til skattyfirvalda, Vinnumálastofnunar, Tryggingastofnunar ríkisins, lögreglustjóra og þegar við á, Útlendingastofnunar og Þjóðskrár þannig að unnt sé að kanna hvort atvinnurekandi eða starfsmaður starfi í samræmi við hlutaðeigandi lög sem hverri stofnun er ætlað að annast framkvæmd á. Undirbúningur undir þennan þátt er þegar hafin og er miðað við að nánari útfærsla á samstarfi framangreindra aðila og verklagi liggi fyrir með haustinu.

Af hálfu samningsaðila er lögð áhersla á að fyrstu þrjá mánuði eftir gildistöku samkomulagsins verði hlutverk eftirlitsfulltrúanna einkum að veita atvinnurekendum, sem undir eftirlit falla, upplýsingar um samkomulagiðásamt hvatningu um hrinda því í framkvæmd.

Opnaður hefur verið sérstakur vefur, www.skirteini.is. Á vefnum er að finna upplýsingar um samkomulag ASÍ og SA, lögin og framkvæmdina. Þar er einnig að finna leiðbeiningar um gerð vinnustaðaskírteina.