Reglugerð sjúkrasjóðs
- gr. Nafn sjóðsins og heimili
1.1 Sjóðurinn heitir Sjúkrasjóður Verslunarmannafélags Skagafjarðar, skammstafað Sjúkrasjóður VS.
1.2 Sjúkrasjóður Verslunarmannafélags Skagafjarðar er stofnaður með tilvísun til laga nr. 19, 1. maí
1979.
1.3 Sjúkrasjóður Verslunarmannafélags Skagafjarðar er eign Verslunarmannafélags Skagafjarðar.
Heimili hans og varnarþing er á Sauðárkróki.
- gr. Verkefni sjóðsins
2.1 Verkefni sjóðsins er að veita sjóðsfélögum Sjúkrasjóðs Verslunarmannafélags Skagafjarðar
fjárhagsaðstoð í veikinda-, slysa- og dánartilvikum. Sjóðsfélagar eru þeir sem greitt hafa, eða fyrir
þá hafa verið greidd, iðgjöld til sjóðsins.
2.2 Verkefni sjóðsins er enn fremur að vinna að fyrir byggjandi aðgerðum sem snerta öryggi og
heilsufar.
- gr. Tekjur
3.1 Tekjur sjóðsins eru skv. kjarasamningi Verslunarmannafélags Skagafjarðar sbr. 7. gr. laga nr. 19, 1.
maí 1979, samningsbundin gjöld atvinnurekenda til sjóðsins.
3.2 Vaxtatekjur og annar arður.
3.3 Gjafir, framlög og styrkir.
3.4 Aðrar tekjur sem aðalfundur félagsins/sjóðsins kann að ákveða hverju sinni.
- gr. Stjórn og rekstur
4.1 Stjórn sjóðsins skal kosin með sama hætti og stjórn Verslunarmannafélags Skagafjarðar á
aðalfundi Verslunarmannafélags Skagafjarðar eða á aðalfundi sjóðsins og ber stjórnin ábyrgð á
öllum fjárreiðum sjóðsins.
4.2 Stjórnun sjóðsins skal vera í samræmi við þau sjónarmið sem gilda skv. almennum stjórnsýslu
reglum.
4.3 Heimilt er að fela skrifstofu Verslunarmannafélags Skagafjarðar fjárreiður og umsjón með
sjóðnum. Þó skal halda bókhaldi sjóðsins aðskildu frá öðrum fjárreiðum Verslunarmannafélags
Skagafjarðar.
4.4 Ávallt skulu liggja fyrir gögn um rétt einstaklings til greiðslu úr sjóðnum.
- gr. Bókhald, reikningar og endurskoðun
5.1 Reikningar sjóðsins skulu lagðir fram áritaðir af félagslegum skoðunarmönnum og löggiltum
endurskoðanda fyrir aðalfund Verslunarmannafélags Skagafjarðar eða aðalfund sjóðsins.
5.2 Endurskoðun ber að framkvæma af löggiltum endurskoðanda eða endurskoðunarfélagi í
samræmi við góða endurskoðunarvenju sem í gildi er á hverjum tíma.
5.3 Í ársreikningi eða skýringum með honum skal sundurliða sérstaklega kostnað vegna hvers og eins
bótaflokks skv. 12.gr.
5.4 Um bókhald, reikninga og endurskoðun fer að öðru leyti skv. viðmiðunarreglum um bókhald og
ársreikninga stéttarfélaga og landssambanda sbr. 3.mgr. 44.gr. laga ASÍ eins og þær reglur eru á
hverjum tíma.
- gr. Úttekt óháðra eftirlitsaðila
6.1 Ár hvert, eigi síðar en 31. maí, skulu endurskoðaðir ársreikningar sjóðsins sendir skrifstofu ASÍ.
6.2 Fimmta hvert ár að minnsta kosti skal stjórn sjóðsins fá tryggingafræðing eða löggiltan
endurskoðanda til þess að meta framtíðar stöðu sjóðsins og semja skýrslu til stjórnar um athugun
sína. Stjórn sjóðsins skal senda miðstjórn ASÍ úttekt þessa með ársreikningi sjóðsins.
6.3 Við mat á framtíðar stöðu sjóðsins skal til greina rekstrarkostnað, ávöxtun sjóðsins og hvort
sjóðurinn geti staðið við skuldbindingar sínar. Sérstaka grein skal gera fyrir áhrifum á afkomu
sjóðsins vegna ákvarðana skv. greinum 12.3 og 12.4.
6.4 Geti sjóðurinn ekki staðið við skuldbindingar sínar skv. niðurstöðu úttektarinnar ber stjórn
sjóðsins að leggja fyrir aðalfund tillögu að breytingu á reglugerð sem tryggir að sjóðurinn geti
staðið við skuldbindingar sínar.
- gr. Ávöxtun sjóðsins
7.1 Heimilt er að ávaxta fé sjóðsins með eftirfarandi hætti;
- a) í ríkisskulda bréfum eða skuldabréfum sem tryggð eru með ábyrgð ríkissjóðs,
b) með kaupum á markaðsskráðum verðbréfum,
c) í bönkum eða sparisjóðum,
d) í fasteignum tengdum starfsemi sjóðsins,
e) á annan þann hátt er stjórn sjóðsins metur tryggan sbr. 11.gr. viðmiðunarreglna um bókhald og
ársreikninga stéttarfélaga og landssambanda eins og þær eru á hverjum tíma sbr. 41.gr. laga ASÍ.
- gr. Ráðstöfun fjármuna
8.1 a) Ávallt skal þess gætt að ráðstöfun fjármuna sjóðsins brjóti ekki í bága við tilgang hans eða
verkefni.
b) Þegar um er að ræða ráðstöfun fjármuna til verkefna sem ekki falla undir megintilgang sjóðsins
með beinum hætti skal tryggt að um eðlilega ávöxtun þess fjármagns sé að ræða, sbr. a, b og c lið
greinar 7.1.
- gr. Grundvöllur styrkveitinga úr sjúkrasjóði
9.1 Rétt til styrkveitinga úr sjóðnum eiga þeir sem fullnægja eftir töldum skilyrðum, sbr. þó 10. gr.
9.2 Einungis þeir sem sannanlega greiða eða er greitt af til sjóðsins og verið er að greiða fyrir til
sjóðsins þegar réttur til aðstoðar myndast.
9.3 Þeir sem greidd hafa verið af til sjóðsins 1% iðgjöld í a.m.k. 6 mánuði.
9.4 Hafi um sækjandi verið fullgildur aðili í sjúkrasjóði annars félags innan ASÍ þar til hann byrjar
greiðslu til sjóðsins, sbr. 10. gr.
9.5 Hafi iðgjöld til sjúkrasjóðs ekki verið greidd vegna sjóðfélaga, en hann getur fært sönnur á, að
félagsgjöld til viðkomandi aðildarfélags hafi samkvæmt reglulega útgefnum launaseðlum verið
dregin af launum hans síðustu 6 mánuði, skal hann njóta réttar eins og iðgjöld til sjúkrasjóðs hafi
verið greidd.
- gr. Samskipti sjúkrasjóða
10.1 Sá sem öðlast hefur rétt til greiðslu sjúkra- og slysadagpeninga úr sjúkrasjóði eins
verkalýðsfélags, öðlast þann rétt hjá nýjum sjóði skv. þeim reglum sem þar gilda eftir að hafa
greitt í þann sjóð í einn mánuð, enda hafi hann fram að því átt rétt hjá fyrri sjóðnum.
10.2 Vinni maður á fleiri en einum vinnustað og hafi verið greitt í fleiri en einn sjúkrasjóð þegar sótt
er um greiðslu, skal umsækjandi greina frá því í hvaða sjóði hann hefur greitt og er heimilt að
fresta greiðslu bóta þangað til fyrir liggur staðfesting annarra sjóða á því að umsækjandi hafi ekki
sótt um greiðslur þaðan. Sjúkrasjóðurinn skal leita slíkrar staðfestingar og gefa síðan öðrum
sjóðum yfirlit yfir þær bætur sem greiddar eru vegna umsækjandans, tegund og fjárhæð bóta.
- gr. Geymd réttindi
11.1 Heimilt er að veita þeim sem gengst undir starfsþjálfun, sækir námskeið eða stundar nám í allt
að 24 mánuði og hefur síðan aftur störf á samningssviði aðildarfélaga ASÍ, endurnýjaðan bótarétt
þegar greitt hefur verið til sjóðsins í einn mánuð, hafi umsækjandi áður verið fullgildur sjóðfélagi.
Sama gildir um þá sem hverfa frá vinnu vegna veikinda eða af heimilisástæðum.
11.2 Þeir sjóðfélagar sem fara í lögbundið fæðingarorlof halda áunnum réttindum sínum hefji þeir
þegar að loknu fæðingarorlofi aftur störf á samningssviði aðildarfélaga ASÍ enda ákveði
viðkomandi að viðhalda rétti sínum með greiðslu félagsgjalds í fæðingarorlofi. - gr. Styrkveitingar
12.1 Dagpeningar í veikinda- og slysaforföllum í 180 daga (6 mánuði), að loknum greiðslum skv.
veikinda- og slysaréttarákvæðum kjarasamninga. Dagpeningar skulu að viðbættum bótum
almannatrygginga, greiðslum úr slysatryggingu launafólks eða annarri lögbundinni tryggingu, ekki
nema lægri fjárhæð en 80% af meðaltali þeirra heildarlauna sem iðgjald hefur verið greitt af á
síðustu 6 mánuðum.
12.2 Dagpeninga í 90daga (3 mánuði), að loknum kjarasamningsbundnum greiðslum launagreiðanda
vegna langveikra og alvarlega fatlaðra barna. Greiðslur skulu ekki nema lægri fjárhæð m.v.
starfshlutfall sjóðfélaga en 80% af meðaltali þeirra heildarlauna sem iðgjald hefur verið greitt af á
síðustu 6 mánuðum. Með langveikum börnum er átt við börn undir 18 ára aldri sem greinast með
alvarlegan og/eða langvinnan sjúkdóm og þarfnast sérstakrar umönnunar. Með alvarlega
fötluðum börnum er átt við börn undir 18 ára aldri sem greinast með alvarlega greindarskerðingu,
geðraskanir eða alvarlega líkamlega hömlun og þarfnast sérstakrar umönnunar.
12.3 Dagpeninga í 90 daga (3 mánuði) vegna mjög alvarlegra veikinda maka. Greiðslur skulu ekki
nema lægri fjárhæð m.v. starfshlutfall sjóðfélaga en 80% af meðaltali þeirra heildarlauna sem
iðgjald hefur verið greitt af á síðustu 6 mánuðum.
12.4 Eingreiddar dánarbætur við andlát virks og greiðandi sjóðfélaga sem nemi 500.000.- krónum
m.v. starfshlutfall hans. Eingreiddar dánarbætur við andlát félagsmanns sem að látið hefur af
störfum sökum aldurs en var fullgildur félagi síðustu 10 ár hjá félaginu eru kr. 250.000,-.
Bótafjárhæðir þessar endurskoðast árlega og miðast við launavísitölu 01.04.2018 og tekur sömu
breytingum og hún.
Sá sem lætur af störfum eftir að 67 ára aldri er náð skal halda rétti til dánarbóta úr sjóðnum, í allt
að 60 mánuði. Talið er frá þeim degi sem viðkomandi lætur af störfum. Upphæðin helst óbreytt
eða 250.000,-
Rétt til dánarbóta hafa:
Eftirlifandi maki
Börn hins látna, eða sá sem annast framfærslu barna að fullu
Aðrir lögerfingjar ef þeir bera kostnað af útför
12.5 Dagafjölda greiddra dagpeninga skv. 12.1 lið, til þeirra sem greitt er hlutfallslega lægra iðgjald af
en 1%, er heimilt að skerða í sama hlutfalli og iðgjaldið er lægra en 1%.
12.6 Dagpeninga skv. 12.1, 12.2 og 12.3 er heimilt að miða við meðaltal heildarlauna á síðustu 12
mánuðum í stað síðustu 6 mánaða, hafi tekjur sjóðfélaga breyst verulega til hækkunar eða
lækkunar á viðmiðunartímabilinu. Jafnframt er heimilt að ákveða hámark dagpeninga skv. 12.1,
12.2 og 12.3 sem þó sé ekki lægra en 250.000.- á mánuði.
12.7 Réttur skv. 12.1, 12.2 og 12.3 endurnýjast á hverjum 12 mánuðum, hlutfallslega eftir því sem
hann er nýttur, talið frá þeim degi sem dagpeningagreiðslum lýkur hverju sinni og greiðslur
iðgjalda hefjast að nýju.
12.8 Styrkir til stofnana og félaga samtaka skulu ákveðnir af stjórn sjóðsins hverju sinni skv. gr. 2.2.
12.9 Við ráðstöfun fjármuna skv. 12.8 og 12.9 skal þess gætt að möguleiki sjóðsins til að standa við
upphaflegar skuld bindingar sínar vegna sjúkdóma og slysa skerðist ekki. Í reglulegri úttekt á
afkomu sjóðsins, skv. 6. gr., skal úttektaraðili skoða þennan þátt sérstaklega.
12.10 Slysadagpeningar skv. grein þessari greiðast ekki vegna bótaskyldra slysa og atvinnusjúkdóma,
þ.m.t. bifreiðaslysa, þar sem bætur greiðast skv. skaðabótalögum.
12.11 Sjóðurinn greiðir styrk til félagsmanna vegna ýmiskonar líkamsræktar, endurhæfingar og
kostnaðar vegna hjálpartækja s.s. gleraugna- og heyrnartækja, ef ekki koma greiðslur frá
Tryggingastofnun ríkisins. Upphæð styrkja skal miða við 50% af útlögðum kostnaði samkvæmt
reikningi, að hámarki 40% af iðgjöldum viðkomandi í sjóðinn síðustu 36 mánuði, en þó ekki af eldri
iðgjöldum en frá 1. janúar 2018. Lágmarksstyrkur á hverju almanaksári skal þó ekki vera lægri en
kr. 4.000.
Bótaflokkar geta t.d. verið:
- Kort í sundlaugar
- Kort í heilsuræktarstöðvar
- Leikfimi undir leiðsögn viðurkennds leiðbeinanda s.s. íþróttakennara
- Sundleikfimi undir leiðsögn viðurkennds leiðbeinanda
- Jóganámskeið undir leiðsögn viðurkennds jógakennara
12.12 Taka má þátt í kostnaði vegna endurhæfingar og/eða eftir sjúkdóm eða slys eða við sérstakar
aðgerðir. Einnig er heimilt að taka þátt í sjúkranuddkostnaði/ sjúkraþjálfun að ráði læknis.
Upphæðin getur numið helmingi þess kostnaðar sem viðkomandi greiðir í allt að 25 skipti á hverju
12 mánaða tímabili.
12.13 Þeir félagar sem að dvelja á endurhæfingarstöðvum SÁÁ eða sambærilegum viðurkenndum
stofnunum, skulu fá greidda sjúkradagpeninga einu sinni í allt að sex vikur miðað við tólf mánuði.
12.14 Heimilt er að greiða sérstakan styrk til þeirra félagsmanna sem að fara í frjósemisaðgerð, allt að
100.000 kr. á ári.
12.15 Heimilt er að styrkja laser augnaðgerð eða augasteinaskipti einu sinni á hvoru auga, að hámarki
kr. 50.000,- þó ekki meira en sem nemur 50% af kostnaði fyrir hvort auga, eða kr. 100.000,- fyrir
bæði augu.
12.16 Sjóðurinn endurgreiðir vegna skoðunar hjá Hjartavernd eða öðrum viðurkenndum stofnunum
(áreynslu/þolpróf ) þeim sem hafa verið sjóðfélagar í a.m.k. 12 mánuði kr.8.000,- á hverju 12
mánaða tímabili.
12.17 Sjóðurinn endurgreiðir 20% af dvalarkostnaði á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði, þeim
félagsmönnum sem hafa greitt til félagsins a.m.k. 12 mánuði. Styrkurinn er greiddur einu sinni til
hvers aðila.
12.18 Heimilt er að greiða félagsmönnum styrk vegna viðtalsmeðferðar hjá löggiltum sálfræðingi,
geðhjúkrunarfræðingi, félags- eða fjölskylduráðgjafa og vegna ADHD greiningar. Greitt er 50% af
reikningi, þó aldrei meira en 50.000 kr. á ári og að hámarki 40% af iðgjöldum viðkomandi í sjóðinn
síðustu 36 mánuði.
12.19 Heimilt er að greiða fyrir reglubundna krabbameinsskoðun gegn framvísun kvittunar. Um er að
ræða eina greiðslu á ári, þá sömu og hefðbundin skoðun kostar, og skiptir ekki máli þó framvísað
sé hærri reikningi frá sérfræðingi. Ellilífeyrisþegar og öryrkjar sem luku starfsferli sínum sem
félagsmenn, og sannarlega áttu þá fullan rétt hjá sjóðnum, eiga rétt á endurgreiðslu
hefðbundinnar krabbameinsleitar.
Heimilt er að greiða fyrir aðra krabbameinsleit og framhaldsskoðun vegna krabbameins, gegn
framvísun kvittunar. Greitt er allt að 8.000 kr., þó aldrei hærri upphæð en greiðslukvittun segir til
um.
- gr. Lausn frá greiðsluskyldu
13.1 Ef farsóttir geisa getur sjóðs stjórn leyst sjóðinn frá greiðsluskyldum sínum um stundarsakir.
Einnig getur sjóðsstjórn ákveðið að lækka um stundarsakir upp hæð dagpeninga ef afkomu
sjóðsins virðist hætta búin.
- gr. Tilhögun greiðslna úr sjóðnum
14.1 Afgreiðsla sjóðsins skal vera á skrifstofu Verslunarmannafélags Skagafjarðar og greiðir sjóðurinn
allan kostnað sem af rekstri hans leiðir.
14.2 Stjórn sjóðsins setur nánari reglur um fyrirkomulag á greiðslu dagpeninga og aðra
starfstilhögun.
14.3 Stjórn sjóðsins og starfsmenn hans skulu hafa að leiðarljósi almennar stjórnsýslureglur um
meðferð upplýsinga um umsóknir og afgreiðslu sjóðsins.
14.4 Umsóknum skal skilað á því formi sem stjórn sjóðsins ákveður og þeim fylgi nauðsynleg vottorð
sem tryggja réttmæti greiðslna.
- gr. Fyrning bótaréttar
15.1 Réttur til dagpeninga í veikinda- og slysaforföllum skv. gr.12.1 og 12.4 fellur niður sé þeirra ekki
vitjað innan 12 mánaða frá því rétturinn stofnaðist.
15.2 Réttur til styrkja skv. reglugerð þessari fellur að öðru leyti niður sé þeirra ekki vitjað innan 12
mánaða frá því rétturinn stofnaðist.
- gr. Endurgreiðsla iðgjalda
16.1 Iðgjöld til sjóðsins endurgreiðast ekki.
- gr. Upplýsingaskylda
17.1 Stjórn sjóðsins er skylt að upplýsa sjóðsfélaga um rétt þeirra til aðstoðar sjóðsins á aðgengilegan
hátt m.a. með út gáfu bæklinga, dreifirita og/eða á heimasíðu félagsins.
- gr. Breyting á fjárhæðum og styrkjum
18.1 Stjórn sjóðsins skal leggja fyrir aðalfund breytingar á almennum reglum um fjárhæðir styrkja
sem sjóðurinn greiðir.
- gr. Breytingar á reglugerðinni
19.1 Breytingar á reglugerðinni verða aðeins gerðar á aðalfundi og þurfa þær að vera samþykktar
með meirihluta greiddra atkvæða fundarins. Slíkrar tillögu skal getið í fundar boði.
19.2 Breytingar á reglugerðinni skulu sendar skrifstofu ASÍ þegar þær hafa verið samþykktar á
aðalfundi.
Samþykkt á aðalfundi 12.maí 2022 og fyrri samþykkt frá 14.maí 2018 fellur úr gildi.