Á heimasíðu ASÍ má finna frétt um kennitöluflakk. Slík starfsemi hefur fjölþætt áhrif og skaðinn sem af henni hlýst kostar samfélagið okkar tugi milljarða á ári.
Það eru tekjur sem vel mætti nýta til að bæta heilbrigðis-, velferðar- og menntakerfið svo dæmi séu tekin.
Á heimasíðu ASÍ má finna frétt um kennitöluflakk. Slík starfsemi hefur fjölþætt áhrif og skaðinn sem af henni hlýst kostar samfélagið okkar tugi milljarða á ári.
Það eru tekjur sem vel mætti nýta til að bæta heilbrigðis-, velferðar- og menntakerfið svo dæmi séu tekin.
Alþýðusamband Íslands hefur lengi gagnrýnt andvaraleysi og ótrúlegt langlundargeð stjórnvalda gagnvart kennitöluflakki og þeim skaða sem slík starfsemi veldur. ASÍ gerir tillögur í 16 liðum um aðgerðir til að sporna við kennitöluflakki. Með því vill ASÍ taka frumkvæði og setja á dagskrá baráttuna gegn þessum skaðvaldi í íslensku atvinnulífi. Jafnframt bendir ASÍ á að kennitöluflakk og svört atvinnustarfsemi þrífast gjarnan hlið við hlið.
Í sinni einföldustu mynd má lýsa kennitöluflakki sem skipulagðri aðgerð einstaklinga þar sem verðmæti eru tekin út úr einu félagi (hf./ehf.) og sett í annað félag en skuldir og aðrar skuldbindingar skildar eftir og félagið síðan sett í þrot. Mörg dæmi eru um keðju slíkra gjörninga vegna sama rekstursins þar sem sömu einstaklingar eru í forsvari. Fullyrða má að þetta athæfi kosti íslenskt samfélag tugi milljarða króna á ári.
Samfélagslegt tjón
Kennitöluflakk og misnotkun á félögum (hf./ehf.) með takmarkaða ábyrgð hefur alvarleg og víðtæk áhrif fyrir samfélagið allt, atvinnulífið og launafólk og veldur þannig miklu samfélagslegu tjóni fyrir:
• Starfsmenn sem eiga útistandandi launakröfur á hin gjaldþrota félög auk þess að tapa starfi sínu og margvíslegum réttindum.
• Fyrirtæki í hliðstæðum rekstri, og starfsmenn þeirra, sem standa skil á sínu en búa við skekkta samkeppnisstöðu vegna þeirra sem hafa rangt við.
• Birgja sem fá ekki greidda sína vöru og þjónustu og geta vegna ruðningsáhrifa slíks tjóns, sjálfir orðið gjaldþrota.
• Sameiginlega sjóði landsmanna sem verða af tekjum sem skipta a.m.k. tugum milljarða á hverju ári. Tekjum sem nýta mætti til að bæta heilbrigðis-, velferðar- og menntakerfi svo dæmi séu tekin.
Árið 2012 voru á Íslandi skráð 31 þúsund fyrirtæki með takmarkaða ábyrgð og fer þeim fjölgandi. Takmörkuð ábyrgð vísar til þess að sá/þeir sem að félaginu standa taka ekki á sig aðra skuldbindingu en þá að greiða tiltekna fjárhæð við stofnun félagsins. Að öðru leyti eru þær skuldbindingar sem gerðar eru í nafni félagsins á ábyrgð þess, ekki eigendanna. Dæmi eru um að einn og sami einstaklingurinn hafi farið með 29 félög í gjaldþrot á sjö ára tímabili.
Samkvæmt gögnum Creditinfo skiluðu einungis 22% félaga ársreikningi á réttum tíma árið 2011. Mikil fylgni er á milli þess að skila ekki ársreikningi og að vera í vanskilum því 72% þeirra fyrirtækja, sem ekki hafa skilað ársreikningi 2011, eru á vanskilaskrá.
Aðgerða er þörf
Á grunni víðtækrar upplýsingasöfnunar og greiningar á kennitöluflakki og skaðlegum afleiðingum þess kynnir Alþýðusamband Íslands tillögur til úrbóta í 16 liðum, þar á meðal þessar:
• Strangari reglur um hæfi einstaklinga til að vera í forsvari fyrir félög með takmarkaða ábyrgð, m.a. að „síbrotamenn“ missi hæfi til að stofna eða að vera í forsvari fyrir félag með takmarkaða ábyrgð í tiltekinn tíma.
• Sátt vegna skattalagabrota leiðir til missis hæfis á sama hátt og dómur fyrir refsiverðan verknað gerir nú.
• Krafa um aukið hlutafé við stofnun félags með takmarkaða ábyrgð og tryggt að það sé greitt.
• Skilyrði sett að þeir sem eru í forsvari fyrir félag með takmarkaða ábyrgð hafi sótt viðurkennt námskeið um rekstur slíkra félaga.
• Heimild fengin til að sekta forsvarsmenn félaga sem standa ekki skil á ársreikningi.
• Komið verði upp miðlægri rafrænni skráningu á eignarhaldi í félögum.
• Takmörk verði sett á nafnabreytingar félaga með takmarkaða ábyrgð.
• Girt verði fyrir heimildir aðila sem eru tengdir félögum með takmarkaða ábyrgð til að taka fé út úr félaginu með lánum eða öðrum hætti.
• Settar verði viðmiðunarreglur um hvenær „meintar“ skuldbindingar vegna félaga með takmarkað ábyrgð flytjast yfir á forsvarsmennina.
• Heimild til að framkvæma slit á „óvirkum“ félögum verði flutt og fylgt eftir af festu. Opinberir aðilar marki sér heildstæða stefnu um aðkomu sína sem kröfuhafi að þrotabúum félaga með takmarkaða ábyrgð.